23.01.2007 23:22:34 / Vision
4E10C7E23EAA252A37216720EB39CF97
»
18.01.2007 13:24:40 / Vision
Hef stofnað nýja síðu
http://juljul.blog.is
Kveðja Júlli
»
09.10.2006 13:21:26 / Vision
Nýtt útlit. Já það er mikið rætt um Svörtu perluna,
Hollendinginn fljúgandi, Jack Sparrow, Elisabeth Swann og fleiri
fígúrur úr Pirates of the Carabbean myndunum heima hjá mér þessa
dagana. Sonur minn er heltekinn af þessu sem er bara skemmtilegt.
Og til þess að vera með honum í þessu þá m.a hef ég skellt þessu
glimrandi fína útliti á bloggið 
Afstaðin helgi var bara hreint ljómandi góð, frábær ferð með 80
Rafvirkja á föstudaginn og fínasta stuð á Bakarínu á fös kvöldið.
Góð fjölskyldustund sem eftir lifði helgar.´N.k föstudagur er það
svo Borg óttans sem kallar á föstudaginn 13. þar er ég áleiðinni á
haustfund sem að í raun kallast Haustlaukur, aðalfundur og
uppskeurhátíð Landssamtaka hátíða og menningarviðburða. Var
að ganga frá því að föstudagskvöldin 20. okt, 27. okt og 3. nóv
verð ég að spila á Kaffi Akureyri með 3gja kvölda 90´s
dansveisluseríu. Að öllum líkindum verður Breezer umboðið með í
spilinu og allra handar vinningar og upákomur...nánar um það síðar.
Sömu kvöld ( Fyrri parts kvölds)og nokkur önnur verð ég kynnir á
nýju showi í Sjallanum, gömlu Sjallaárin......nóg að gera...en
hafið það gott í vikunni.
»
05.10.2006 15:11:13 / Vision
Já það er haust og það er gott, mér líður alltaf svo vel þegar
fer að hausta...myrkrið ég elska myrkrið.....
Addi og Maja til lukku með drenginn 3.október og Friðrik Ómar og
Guðný Jóna til lukku með afmælin ykkar 4. oktober 25 og 31...ekki
rétt.
Síðasta helgi var frábær alveg einstök upplifun og þar gerðist
margt sem ég hélt að væri ekki til....en því miður þá er þetta allt
saman leyndarmál......
Næ ekki að taka Pub Quiz annað kvöld (fös kvöldið 6. okt) er með 80
manna hóp á ferðinni fram að miðnætti, en fer þá á Bakaríið og
spila....eflaust verður eitthvað af 90´s fjörinu frá því um daginn
rifjað upp í bland við annað........gaman væri að sjá ykkur....
JJ
»
28.09.2006 08:15:25 / Vision
Snilld.....ég var að lesa þessa geggjuðu bók....ég ætlaði að kíkja
í hana og það var ekki hætt fyrr en eftir 300 bls...það er oft lygi
þegar bækur eru markaðsettar á þennan máta "bók sem ekki er hægt að
leggja frá sér" eða eitthvað álíka...en það er satt með þessa.
Sögusviðið er Barcelona á tímum Francos og þetta er engin
hefðbundin stórborgarreisa sem leiðsögumaður okkar, hinn ungi
Daníel Sempere, býður upp á. Í skjóli nætur fer hann ásamt föður
sínum, fornbókasalanum, í Kirkjugarð gleymdu bókanna og á að velja
sér bók til ævarandi varðveislu; val sem verður afdrifaríkt því
Daníel verður heltekinn af sögunni og hinum dularfulla höfundi,
Julián Carax, og leitin, sem á eftir að standa yfir í áratug. Það
var ekki verra að ég er búin að koma á söguslóðir að mestu leiti.
Þetta er ævintýralegur söguþráður með mögnuiðum persónum. Leitin að
Carax hefst í stórborgarmyrkri og varla hægt að segja að það birti
mikið í bókinni því við ferðumst með Daníel um borgina að
næturlagi, eftir skuggastrætum, iðulega regnvotum, um dimma
stigaganga, í þokumistri og þreifum okkur áfram í ljóslausum
draugahöllum. Sýnu ævintýralegastur þeirra staða sem
eltingaleikurinn leiðir okkur á er þó elliheimili fyrir
undirheimalýð borgarinnar - þar nýtur mikil frásagnargleði
höfundarins sín til fulls. Ef þú ert ekki búin að lesa hana gerðu
það þá....ef þú hefur ekki tíma..finndu hann. Er leiðinni til Rvík
um helgina, en fyrst á Sólarhringsfund í Vaðlaheiðinni á vegum
Landsamtaka hátíða og menningarviðburða þar sem ég er formaður.
Góða helgi
»
26.09.2006 18:50:33 / Vision
Sagan sem ég var byrjaður á kemur útá bók seinna.... Vegna
þrýstings frá góðu fólki er best að byrja að blogga aftur....það
hefur æði margt drifið á daga manns síðan að ég bloggaði
síðast...t.d fór ég í nokkrar útilegur og ég var líka á
Fiskideginum mikla...daufa...!!!!!! Síðasta helgi var aldeilis
mögnuð...stuð...fór með Sæplaststaffið í óvissugönguferð geggja
gaman...síðan var Pub Quiz....þar var góðmennt....og siðan var 90´s
kvöld á Bakaríinu og það var magnað....þvílíki stemmarinn, var
búinn að fá lánaða reykvél og allskyns ljós og læti...bara
skemmtilegt og meira að segja dönsuðu hörðustu rokkarar mikið og
létu vel af. Á laugardagskvöldið var ég að spila á KAffi Akureyri,
það var ógeðslega skemmtilegt....vááá fullt hús...brjáluð röð
húsinu lokað og þakið ætlaði að rifna af.....eintóm gleði. en þetta
er orðið dálítð mikið af bloggi miðað við undanfarnar
vikur....skilaði handriti af mér í dag...meira um það síðar. Hulio
»
01.05.2006 09:03:49 / Vision
Ég er farin að vinna hálfan daginn núna, ég svara í síma á
skrifstofu þriggja lögfræðinga. Það er gott að vera komin í vinnu
aftur. Þeir sem ég vinn hjá eru ágætir, þó það sé ekkert brjálað
stuð alltaf....yfirleitt er þetta ekki glatt fólk sem hringir á
þessa lögfræðiskrifstofu. Ég fór tvisvar í viku strax eftir vinnu
til að sækja son bróður míns á leikskólann, það fannst mér
skemmtilegt og hann var hjá mér þar til að kona bróður míns var
búin að vinna. Honum fannst skemmtilegt að vera hjá mér, en fór oft
að skæla þegar að mamma hans kom. Mér þykir vænt um bróður minn en
konan hans er algjör tussa, hún er frek og kemur illa fram við þá
sem minna meiga sín.......og að auki er ég viss um að hún heldur
fram hjá bróður mínum. Ég forðast að umgangast hana sem allra mest,
en læt mig hafa það þegar þannig stendur á. Núna vill hún ekki að
ég taki strákinn af leikskólanum. Ég veit ekki hvað hún er að
hugsa, ég treysti henni ekki. Næsta vika verður erfið hjá mér...ég
vona að þú verðir með mér guð og styðjir mig ......
»
27.04.2006 13:57:49 / Vision
Ég var nú ekki búin að segja ykkur frá mér. Ég er fædd árið 1965 og
er þá 42 ára gömul..ok ég var ekki góð í reikningi í skólanum í
denn, eða í skólanum yfirleitt, mér leiddist skólagangan og þegar
ég var að verða 15 ára hætti í skólanum og fór til Vestmannaeyja að
vinna í fiski. Þetta var ekki gáfuleg ákvörðun, þetta sagði pabbi
við mig þegar ég fór. Í dag hugsa ég oft um það að staðan í mínu
lífi væri allt öðruvísi í dag ef ég hefði hlustað meira á karl
föður minn, sem mér þykir mjög vænt um í dag ...en hataði hann
þegar ég var unglingur. Í Vestmannaeyjum kynntist ég mörgum og ekki
voru þeir allir kirkjunnar menn. Þetta var ógeðslegur tími að mestu
leiti, ég var fljótt ófrísk eftir helvítis aumingja, rauðhærðan
viðbjóð frá Kópavogi. Hann var kallaður Rauði mongóinn, ég veit
ekki hvað ég var að hugsa enda lét ég eyða fóstrinu. Ég var bara
svo viðkvæm og sótti í það ef einhver sýndi mér vináttu eða hlýju,
þó svo að flest af þessu hafi verið til þess eins að komast yfir
fallegan líkama minn. Ég hugsa stundum um að ég vildi að ég hefði
ekki fæðst svona myndarleg, það er það sem hefur farið með mig og
allt sem ég hef lent í hefur verið því að kenna á einhvern máta.
Eina manneskjan sem mér þótti vænt um í Vestmannaeyjum hét Árni og
var forstjóri fiskivinnslunnar og var 17 árum eldri ég, hann var
góður....allavegana þá og mér leið vel á þessum tíma sem við vorum
saman...en í dag veit ég ekki hvað skal segja, það eru aðrir sem
koma til með að dæma um það. Framh....
»
21.04.2006 14:34:46 / Vision
..þessi gamla kona leyndi á sér, þóttist alltaf vera hjálpsöm og
blíð þegar aðrir sáu, en þegar maður sneri við henni bakinu var hún
algjört bitch síðtuðandi, lítill frændi minn sem kom hér í heimsókn
og sá hana út um eldhúsgluggann, spurði " býr norn í næsta
húsi ?" bragð er að þá barnið finnur. Þegar ég fer að
hugsa um það þá bú algjöri klikkhausar í þessu hverfi, í
kjallaranum býr náungi sem ég hef aldrei talað við, stundum
held ég að hann sé dauður. Hann er lítið á ferli og og gardínurnar
eru alltaf dregnar fyrir hjá honum og hann fer nánast ekkert
út...hann borgar alltaf leiguna og það eru aldrei læti hjá
honum....undarlegur andskoti, annaðslagið kemur einhver náungi í
heimsókn og sá er skuggalegur. Ég hef staðið mig að því þegar ég
fer niður í þvottahús að stoppa fyrir framan dyrnar hjá honum og
þefa hvort að ég finni hasslykt eða hreinlega nálykt...og éf ég
fyndi þá ógeðlsegu lykt aftur, þá flyt ég út og ekki seinna en í
gær. Hvað ætli þetta skrýtna lið í kring um mig hugsi eða segi um
mig...gáfuleg pæling hjá mér...ég er örugglega jafnundarleg eða enn
undarlegri en þau í þeirra augum....mér finnst ég bara vera
venjuleg.....eað allavegana var ég það.
»
20.04.2006 13:20:19 / Vision
Hefndin.
Ég er ekki vön að vera ein, ég get ekki vanist
tilhugsuninni...hvers vegna gerðist þetta...afhverju ég, hvað hef
ég gert ? ég á þetta ekki skilið ég er saklaus.
Það var vor og snjórinn var að hverfa, það dropaði ofan af húsþökum
og húsflugurnar voru farnar að gera vart við sig, stundum gátu þær
gert mann brjálaðan er þær byrjuðu að suða og hoppa og skoppa innan
í pappakúluljósunum sem svo margir eiga, þetta eru ódýr ljós enda
ekki mikið um stóreignamenn hér. Pervertinn í næsta húsi var
byrjaður að týna út sumarhúsgögnin og það vissi bara á eitt, það
styttist i að hann færi að hanga allan daginn úti með bumbuna út í
loftið, starandi á alla í nágrenninu og vonast til þess að einhver
kvinnan færi úr að ofan...ojjjj hann er algjör viðbjóður...afhverju
lenda ekki svona kallar undir bíl eða í brjáluðum sveðjuglæpamönnum
sem leynast út um allt land og stökkva fram ...og höggva ...ekki
rétta menn. Hinn nágranninn minn var 63 ára gömul kona sem ég veit
ekki hvort að er góð eða ekki...framh síðar.
»
14.04.2006 11:35:37 / Vision
Páskar matur og éta og matur og vinahittingur...skíði og
stuð..nesti og sól. Verð að Dj ast á Bakaríinu eitt kvöld um páskan
frá miðnætti að kvöldi Föstudagsins langa....bara stuð....sjáumst,
skíðumst og elskumst. JJ
»
07.04.2006 08:32:02 / Vision
Ég hef ekki mikinn áhuga á körfubolta og á engin tengsl til
Borgarness...en mér leið þannig í gærkvöldi þegar ég frétti að
Skallagrímur hefði slegið Keflvíkingana út í íslandsmótinu. Mér
fannsyt þetta bara æðislegt. Ég óska Magna Óskarssyni og félögum
hans í MA til hamingju með sigurinn í gettu betur- Þeir rústuði
þessu eins og ég vissi allann tímann - ´REg var búinn að segja
MAgna Þetta fyrir löngu - Það er gott að hafa sambönd.....Hér
snjóar og það er bara gaman

Pub Quiz í Bakaríinu í kvöld og
spilamennska á efgtir og frí á morgun laugardagskvöld. Það er líka
síðasta þemaspurningakvöldið í kvöld og þá kemur í ljós hver fær
einhverja þúsundakalla
»
30.03.2006 09:01:52 / Vision
Í morgun þegar ég var að skfa snjóinn af bílnum mínum, datt mér
allt í einu í hug sjónvarpsþáttur, eða heimildarmynd. Þetta var
örugglega ein af fyrstu myndunum sem var búin til hjá sjónvarpinu.
Þetta voru nokkurskonar innslög sem voru sæynd annað slagið í
nokkur ár og maður horfði á þetta með áfergju enda ekki mikið um
tilbúna íslenska þætti ef svo mætti orða.
En þetta voru þættir tengdir bílum og vetrtarakstri, mig minnir að
Ómar Ragnarsson hafi séð um þá, en þar gæti mig líka misminnt þar
sem hann var seinna meirt með álíka þætti. En alla vega þá var
þessi þáttur sem ég man eftir um það að skafa af bílrúðum,
lati maðurinn gerði svona, gáfaði maðurinn svona, einn lét dagblöð
á rúðuna um kvöldið, einn átti ekki sköfu, einn var ríkur og var
bara með bílinn inn í skúr, annar vaknað snemma og setti bílinn í
gang og svona mætti lengi telja......skrýtið hvað poppar upp hjá
manni svona í morgunsárið....þegar ég íslendingurinn fór út á
peysunni setti bílinn í gang skóf af honum og keyrði af stað.
Chao
»
28.03.2006 08:51:11 / Vision
Góðan dag.
Ég frétti af því að hluti af sveitinni (Svarfaðardal) hefði verið
án rafmagns um tíma í gærkvöldi. Ég dauðöfunda þau af þessari
stund, fólk sem ég ræddi við lýsti þessu einmitt eins og þetta er í
minningunni - Kertaljós - spjall - rólegheit - spil og næs. Fólk
fer að hugsa öðruvísi.
Það sem æsku landsins vantar í dag er almennileg norðan stórhríð í
viku, rafmagnsleysi - frí í skólanum og þurfa að láta sér leiðast,
geta ekki gripið í öll rafmagnstækin - Fjölskyldur spjalla og spila
- vinirnir hittast og spila Matador eða úttvegsspilið í marga
klukkutíma við kertaljós og snjórinn hylur alla glugga og vindurinn
gnauðar úti.....Ég legg til að það verði sett á ein slík vika á
ári...kannski að við getum selt ferðamönnum rafmagnslausa daga á
vetrum...?? því ekki.
Yfir til þín rafmagnaði lesandi
»
21.03.2006 08:03:50 / Vision
Þar sem að Addi E kaus mig sem bloggara vikunnar um daginn...þá er
best að skrifa hér nokkur orð orð orð orð orð Ógeðslega fyndið eða
þannig. Það er einhvern veginn búið að vera brjálað að gera og
bloggið legið á hakanum. Í morgun gladdist maður með
Skíðafélagsmönnum vegna þess að það kom snjór úr lofti og það er
kalt og nú geta þeir framleitt snjó með byssunum fjórum og vonandi
gengur þetta vel því eftir tvo daga hefst hér Landsmótið á skíðum

Það verður nóg um að vera um næstu helgi hér, Risa 800 manna
árshátíð Samherja, Heimsmeistaramótið í brús, Svarfdælskur mars,
upplestur þjóðþekktra rithöfunda, málverkasýningar og
fleira...síðan styttist í frumsýningu L.D á blessuðu
barnaláni...nóg að gerast og engum ætti að leiðast..... Skipti.
»
Síður:
1 2 3 ...
8